Lið FS úr leik í MORFÍs
Þá er þáttöku okkar í MORFÍs 2011-2012 lokið eftir sárt tap gegn MÍ-ingum á föstudaginn. Keppnin fór þannig að við fengum 1367 stig en lið MÍ 1329, við fengum því 38 stigum meira en MÍ. En þar sem tveir af þrem dómurum keppninnar dæmdu MÍ sigur tók svokallaða „tveggja dómara reglan“ gildi og því fór svo að Ísfirðingarnir sigruðu.
Við getum þó verið stolt af árangri liðsins, þau stóðu sig með einstakri prýði. Ræðumaður kvöldins var Arnar Már Eyfells með 518 stig. Fast á hæla honum kom Njáll Skarphéðinsson með 513 stig. Við áttum því tvo bestu ræðumenn kvöldins en það dugði ekki til í þetta skiptið.
Lið FS var skipað eftirfarandi:
Liðsstjóri: Lilja Björg Jökulsdóttir
Frummælandi: Njáll Skarphéðinsson
Meðmælandi: Andri Steinn Harðarson
Stuðningsmaður: Arnar Már Eyfells
Þjálfari liðsins var Guðmundur Egill Árnason
Hér má skoða dómblað keppninnar
Hér má sjá greim 6.8.a í lögum MORFÍs sem fjallar um „tveggja dómara regluna“:
6.8.a Það lið sigrar sem hlýtur fleiri stig að frádregnum refsistigum ef eftirfarandi á ekki við: Dómarar eru ósammála um sigurlið og stigamunur þess dómara sem dæmir öðru liði stærstan sigur og þess sem dæmir sama liði stærstan ósigur er jafn og eða meira en 100 stig. Í því tilfelli sigrar það lið sem fleiri dómarar dæma sigur. Skeri það ekki úr um sigurvegara, þ.e. einn dómara dæmir jafntefli, tekur stigatala aftur afgerandi gildi.
