mí-FS | 32. liða úrslit MORFÍs
Jaaaaááá þá er loksins komið að því, MORFÍs er að fara aftur í gang!
Við munum mæta Menntaskólanum á Ísafirði í 32-liða úrslitum núna á föstudagskvöldið á heimavelli Ísfirðinga. Umræðuefnið er „Ofbeldi leysir ekki vandann“ og mælum við á móti.
Af þessu tilefni ætlum við að skella í eitt risa roadtrip, rúlla á Ísafjörð og fylgjast með nýbakaða MORFÍs liðinu okkar valta yfir þessi Vestfjarðagrey.
Svona verður þetta:
Lagt af stað kl. 11:10 á föstudaginn frá FS. (Frí eftir hádegi fyrir þá sem fara)
Epísk MORFÍs keppni og sigrinum fagnað með pizzuveislu að henni lokinni á föstudagskvöldið.
Gist í Menntaskólanum á Ísafirði.
Rúllað heim á laugardaginn þegar fólk fer að týnast á fætur.
Allt þetta fyrir litlar 3.000 íslenskar krónur.
Skráningarfrestur er fram á miðvikudag. (Takmarkaður sætafjöldi svo endilega bókið ykkur tímanlega ef þið viljið ná ykkur í sæti)
Skráning fer fram á magdalena@nfs.is og á skrifstofu NFS.
