Fréttir


Vilt þú sitja í stjórn Nemendafélagsins næsta skólaár?


Ef þú hefur áhuga á því að skipuleggja, stjórna og taka enn meiri þátt í félagslífi skólans þá er þetta málið fyrir þig. Skemmtilegt og krefjandi! 10 stöður lausar til framboðs, kynntu þér málið og ekki vera feimin/n við að spyrja núverandi stjórn um það sem þig langar að vita. Kosningar fara fram í árshátíðarvikunni 13.-18. apríl og lýkur skráningu í framboð föstudaginn 30. Read More

MEÐ ALLT Á HREINU – Leikrit á vegum NFS og Leikfélags Keflavíkur

MEÐ ALLT Á HREINU – Leikrit á vegum NFS og Leikfélags Keflavíkur

Vox Arena (leikfélag NFS) og Leikfélag Keflavíkur kynna með stolti MEÐ ALLT Á HREINU! Stórglæsileg sýning sem byggð er á myndinni Með allt á hreinu sem kom út fyrir nákvæmlega 30 árum síðan. Myndin naut gríðarlegra vinsælda og sló hún öll aðsóknarmet í kvikmyndahúsum landsins. Með allt á hreinu fjallar um tvær hljómsveitir, Stuðmenn og Gærurnar, ástir og afbrýði meðlima þeirra og Read More

Vizkustykki, undirbúningur!


FSingar! Ritstjórn er komin á fullt með að skipuleggja næsta Vizkustykki og væri ekki leiðinlegt að fá uppástungur frá ykkur, nemendur kærir. Við erum komin með Facebook síðu og viljum sjá sem flesta vera með á henni svo að þið missið ekki af einu augnabliki af gamani! Hægt er að senda nafnlausar hugmyndir, sögur eða bara kveðjur á formspring ritstjórnar sem hægt Read More

Hljóðneminn 2012 – Skráning hafin

Hljóðneminn 2012 – Skráning hafin

  Skráningarblöð liggja fyrir framan skrifstofu NFS. Skráningarfrestur er til og með föstudagsins 10. febrúar. Nánari upplýsingar um keppnina má fá á solvi@nfs.is. https://www.facebook.com/events/364485376911213/

Leikfélag Keflavíkur og Vox Arena í samstarf


Leikfélag Keflavíkur og leikfélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja,Vox Arena hafa ákveðið að leiða saman hesta sína og setja upp söngleik sem samvinnuverkefni í Frumleikhúsinu. Verið er að skoða leikstjóramál en ljóst er að margir hafa áhuga. Á fimmtudagskvöldið, fimmtud. 19. janúar kl. 20.00, verður haldinn kynningarfundur í Frumleikhúsinu fyrir alla þá sem áhuga hafa á að taka þátt. Eina skilyrðið er að vera Read More

Uppistand í sal skólans


Á morgun, föstudaginn 13 (óhappa dagur, daaaam) Mun Bergur Ebbi, einn af meðlimum Mið-Íslands koma og hressa lýðinn. Uppistandið hefst kl. 11:50 og mun standa yfir allt hádegishléð. Vonumst til að sjá sem flesta :)

Heitar Ingur


Okkar elskulegu Ingur hafa hafið sölu á heitum mat og verður hún með kjötbollur á boðstólnum í dag. Verð aðeins 990 kr. gegn framvísun á NFS kortum.

Lið FS úr leik í MORFÍs

Lið FS úr leik í MORFÍs

Þá er þáttöku okkar í MORFÍs 2011-2012 lokið eftir sárt tap gegn MÍ-ingum á föstudaginn. Keppnin fór þannig að við fengum 1367 stig en lið MÍ 1329, við fengum því 38 stigum meira en MÍ. En þar sem tveir af þrem dómurum keppninnar dæmdu MÍ sigur tók svokallaða „tveggja dómara reglan“ gildi og því fór svo að Ísfirðingarnir sigruðu. Við getum Read More

mí-FS | 32. liða úrslit MORFÍs

mí-FS | 32. liða úrslit MORFÍs

Jaaaaááá þá er loksins komið að því, MORFÍs er að fara aftur í gang! Við munum mæta Menntaskólanum á Ísafirði í 32-liða úrslitum núna á föstudagskvöldið á heimavelli Ísfirðinga. Umræðuefnið er „Ofbeldi leysir ekki vandann“ og mælum við á móti. Af þessu tilefni ætlum við að skella í eitt risa roadtrip, rúlla á Ísafjörð og fylgjast með nýbakaða MORFÍs liðinu okkar valta Read More

Pallaball

Pallaball

Þá er komið að því! Glimmer kóngurinn Páll Óskar mun trylla lýðinn í Stapanum fimmtudaginn 3.nóvember. Busaballið var það stærsta og grimmasta í sögu FS og ætlum við að fylgja því eftir! Hvar ætlar þú að vera 3.nóv? Opnar: 21:30 Lokar: 23:00 Búið: 01:00 NFS: 2.000 kr. Aðrir: 2.500 kr Miðasala er í fullum gangi. Tryggðu þér miða STRAX!!

12